Brautarholtsvöllur kemur vel undan vetri og allt bendir til að áform okkar um að opna í júlí gangi eftir. Sökum þurrka seinni part sumars í fyrra náðu tvær brautir ekki að gróa eins vel og við vildum, því þurfum nokkrar góðar sumarvikur í viðbót til að völlur verði vel gróinn.
Við bjóðum þér vettvang til að tengjast viðskiptavinum traustum böndum með því að fara með þá í golf. Við erum í um 30 mín. fjarlægð frá höfuðborginni, við getum sótt þig, boðið þér góðan tíma á golfvelli og á eftir golfleik er hægt að borða saman í fallegu umhverfi áður en farið er í bæinn aftur.
Við þökkum kærlega fyrir áhuga þeirra fjölmörgu sem hafa heimsótt heimasíðu okkar og haft samband. Þeir sem ætla að gerast félagar eða eru að hugsa um að gerast félagar eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur línu á gbr@gbr.is. Áður en gengið er frá formlegri umsókn munum við þegar líður að vori bjóða þeim sem hafa haft samband í heimsókn til að skoða völlinn, umhverfi og fá kynningu á klúbbnum.
Velkomin(n) á heimasíðu Golfklúbbs Brautarholts GBR. Við munum opna nýjan golfvöll um mitt sumar 2012 á Kjalarnesi í Reykjavík. Verið er að leggja loka hönd á fyrstu 9 golfbrautirnar. Búið er að hanna og taka frá land fyrir 18 holu golfvöll á svæðinu og vinna við næstu þrjár holur eru hafnar. Golfvöllurinn er í landi Brautarholts á Kjalarnesi, beygt er af Vesturlandsvegi við Grundarhverfi á Kjalarnesi.
Hefur þú áhuga á frekari upplýsingum eða að skrá þig í GBR? Sendu okkur þá línu á gbr@gbr.is.
Við bjóðum upp á nýjan valkost fyrir golfara á höfuðborgarsvæðinu og betri aðgang að golfleik. Fjöldi félagsmanna verður takmarkaður, félagsmenn fá meiri forgang en annarstaðar, félagsmenn geta boðið með sér gesti í hvert skipti án endurgjalds.