frontimage02.jpg
Forsíða Um GBR Golfvöllur Umhverfið English
Hafa samband

gbr@gbr.is

2012 | 2011 |
9. maí 2012
Góður gangur

Brautarholtsvöllur kemur vel undan vetri og allt bendir til að áform okkar um að opna í júlí gangi eftir. Sökum þurrka seinni part sumars í fyrra náðu tvær brautir ekki að gróa eins vel og við vildum, því þurfum nokkrar góðar sumarvikur í viðbót til að völlur verði vel gróinn.

nánar ->
27. mars 2012
Bjóddu viðskiptavinum í golf
Við bjóðum þér vettvang til að tengjast viðskiptavinum traustum böndum með því að fara með þá í golf. Við erum í um 30 mín. fjarlægð frá höfuðborginni, við getum sótt þig, boðið þér góðan tíma á golfvelli og á eftir golfleik er hægt að borða saman í fallegu umhverfi áður en farið er í bæinn aftur.
nánar ->
23. janúar 2012
Hefur þú áhuga á að gerast félagi?

Við þökkum kærlega fyrir áhuga þeirra fjölmörgu sem hafa heimsótt heimasíðu okkar og haft samband. Þeir sem ætla að gerast félagar eða eru að hugsa um að gerast félagar eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur línu á gbr@gbr.is Áður en gengið er frá formlegri umsókn munum við þegar líður að vori bjóða þeim sem hafa haft samband í heimsókn til að skoða völlinn, umhverfi og fá kynningu á klúbbnum.

nánar ->
7. desember 2011
Nýr golfvöllur í Reykjavík

Velkomin(n) á heimasíðu Golfklúbbs Brautarholts GBR. Við munum opna nýjan golfvöll um mitt sumar 2012 á Kjalarnesi í Reykjavík. Verið er að leggja loka hönd á fyrstu 9 golfbrautirnar. Búið er að hanna og taka frá land fyrir 18 holu golfvöll á svæðinu og vinna við næstu þrjár holur eru hafnar. Golfvöllurinn er í landi Brautarholts á Kjalarnesi, beygt er af Vesturlandsvegi við Grundarhverfi á Kjalarnesi.


Hefur þú áhuga á frekari upplýsingum eða að skrá þig í GBR? Sendu okkur þá línu á gbr@gbr.is.

nánar ->
15. nóvember 2011
Öðruvísi golfklúbbur

Við bjóðum upp á nýjan valkost fyrir golfara á höfuðborgarsvæðinu og betri aðgang að golfleik. Fjöldi félagsmanna verður takmarkaður, félagsmenn fá meiri forgang en annarstaðar, félagsmenn geta boðið með sér gesti í hvert skipti án endurgjalds.

nánar ->
14. nóvember 2011
8 ástæður fyrir að velja GBR

 Í Brautarholti færð þú aðgang að stórglæsilegum golfvelli. Michael Kelly sá um vetvangshönnun, sem er talin einn af topp 10 á sínu sviði í heiminum og Edwin Roald sá um grunnhönnun.

nánar ->
28. apríl 2011
Metnaðarfull uppbygging

Flatir vallarins eru almennt stærri en á öðrum völlum hér á landi, stærstu flatir er um 1600m2. Michael Kelly (www.designshaper.com), sem er heimsþekktur á sínu sviði sá um vetvangshönnun og ráðgjöf við uppbyggingu vallar. Edwin Roald (www.edwinroald.com) sá um gerð grunnskipulags.

nánar ->
25. apríl 2011
Fjölbreytt landslag

Völlurinn liggur í sérstakri náttúru við sjávarsíðuna með síbreytilegu sjónarspili hvort sem er vegna brims eða umferðar báta og skipa. Við hönnun vallarins var haft að leiðarljósi að "leggja völlinn í landið". Ríkt fuglalíf er við völlinn.

nánar ->
2012 | 2011 |