
Nýr og glæsilegur golfvöllur mun opna um mitt næsta ár í landi Brautarholts á Kjalarnesi. Útsýni, stórbrotin náttúra og fjölbreytt fuglalíf munu einkenna golfvöllinn. Við hönnun vallarins var haft að leiðarljósi að leggja hann í landið og hafa ósnert rými umhverfis brautir til að skapa fuglalífi meira svigrúm og að nýta eiginleika umhverfis sem náttúrulegar hindranir.
Búið er að leggja fyrstu níu brautirnar á milli klettaborga í síbreytilegu landslagi meðfram ströndinni og sumar alveg niður í fjöruborð. Hafin er vinna við næstu þrjár brautir og er áætlað að þær verði tilbúnar 2013. Frekari uppbygging mun ráðast af aðsókn á völlinn en búið er að hanna og taka frá land fyrir 18 holu golfvöll.
Michael Kelly, bandarískur golfarkitekt sem komið hefur að hönnun og lögun golfvalla um allan heim (http://www.designshaper.com), sá um vetvangshönnun. Michael er heimsþekktur vetvangshönnuður eða "shaper" sem sjá um gerð landslags í brautum og flötum. Edwin Roald golfvallararkitekt sá um gerð grunnskipulags (http://www.edwinroald.com) .
Formleg mæling á lengd brauta fer fram vorið 2012.