frontimage01.jpg
Forsíða Um GBR Golfvöllur Umhverfið English
Hafa samband

gbr@gbr.is

Umhverfi Brautarholtsvallar

Fræðimenn telja að fyrir tæpum þremur milljónum ára hafi verið megin-eldstöð yst á Kjalarnesi þar sem golfvöllur er staðsettur og náði virkt gosbelti yfir Sundin til Reykjavíkur. Eldstöðin sem kallast ýmist Kjalarneseldstöðin eða Viðeyjareldstöðin var með stöðuga virkni í rúmlega milljón ár og var þá staðsett á plötuskilum Norður-Ameríku og Evrasíuflekanna sem nú liggur frá Suðurnesjum, um Þingvelli og þvert yfir Ísland. Aldur berglaga á Kjalarnesi er sá sami og á Selfossi og í Hreppunum sem bendir til að svæðin hafa legið saman í upphafi en hafa nú rekið frá hvoru öðru.


Talið er að samfellt fjalllendi hafi náð frá hálendinu yfir Esju, Hvalfjörð að Akrafjalli og til Reykjavíkur . Það hefur því verið um og yfir  1000 metrar af jarðlögum ofan á núverandi láglendi á sínum tíma. Gera má ráð fyrir út frá fjölbreytni jarðlaga að eldstöðin hafi verið að svipaðri gerð og Krafla og Askja.  Þegar eldstöðin kólnaði tók við tími jarð- og jökulrofs sem mótaði landslagið eins og við þekkjum það í dag.


Síðustu þrjár milljónir ára hafa komið um 30 jökulskeið sem stóðu í um 100 þúsund ár hvert með um 10 þúsund ára hlýindaskeiðum á milli. Því síðasta lauk fyrir um 10 þúsund árum. Á jökulskeiðunum var gríðarlegt vatnsmagn bundið í jöklum og lækkaði yfirborð sjávar á jörðinni um allt að 130 m miðað við núverandi sjávarmál. Aftur á móti fergðu jöklarnir landið næst sér.  Því voru strandlínur hér víða allhátt yfir núverandi sjávarmáli og finnast skeljalög langt inni á landi. Einn slíkur staður er þar sem golfskáli er.